| Fimmtudagur, 21. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Takk fyrir okkur | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Við þökkum fyrir frábæra helgi og vonumst til að sjá ykkur sem flest að ári liðnu. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 17. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Vel heppnuðu Símamótinu lokið | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hægt er að nálgst liðsmyndir (sem og aðrar myndir) undir Myndir, en hægt verður að nálgast myndirnar þar í hærri gæðum fljótlega. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 17. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Myndbönd frá Símamótinu | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Við höfum nú bætt við nokkrum myndböndum með svipmyndum úr leikjum mótsins.
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 17. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Ætla núna að háma í sig sælgæti! | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þegar ég hitti þessar kátu Blikastelpur voru þær nýbúnar að spila úrslitaleik við FH. Bæði liðin sýndu frábæra takta í leiknum og var hann bráðskemmtilegur, en hann endaði með því að flott lið FH sigraði sprækt lið Breiðabliks. Þessi 2 lið eru mjög jöfn og hafa unnið hvort annað sitt á hvað. Stelpurnar segja að FH-liðið sé ekki bara gott heldur einnig skipað skemmtilegum stelpum. Blikastúlkurnar voru mjög ánægðar með mótið, en voru ekki alveg nógu sáttar með úrslitaleikinn, enda stutt síðan þeim leik lauk. Þær fóru allar á kvöldvökuna í gær og fannst frekar sérstakt þegar Haffi Haff söng lag sérstaklega fyrir pabbana, og að hann skyldi alltaf vera að segja þeim hvað þær væru fallegar. Þær sungu allar hátt með Jóni Jónssyni, og fannst hann mjög skemmtilegur. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 17. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Verðlaunahafar á Símamótinu 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
5. flokkur SA 5. flokkur SB 5. flokkur SC 5. flokkur SD 6. flokkur SA 6. flokkur SB 6. flokkur SC 6. flokkur SD 7. flokkur SA 7. flokkur SB 7. flokkur SC B-úrslit: Allir keppendur í 7. flokki fengu gullpening. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 17. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Aukaleikir í 5. og 6. flokki | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Aukaleikjum hefur verið bætt við í 5. flokki SA og SB og 6. flokki SA og SB og eru þeir komnir inn á netið. Nokkrir þeirra fara fram á velli 19 sem er á Smárahvammsvelli. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 17. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Laugardagur | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Veðrið lék við mótsgesti í gær og var hart barist í hverjum einasta leik. Þó keppnisskapið væri mikið inná vellinum voru allir góðir vinir utan vallar og skein gleðin úr hverju andliti.
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 17. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Kvöldvaka | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Í gærkvöldi var haldin þrususkemmtileg kvöldvaka í Smáranaum. Björgvin Franz mætti á svæðið ásamt dvergnum Dofra og úlfinum úr Stundinni okkar. Þeir sungu fyrir stelpurnar sem tóku vel undir og dönsuðu þær Heimferðardansinn af mikilli innlifun. Haffu Haff steig svo á svið og náði hann vel til stelpnanna með með söng sínum og dansi. Jón Jónsson mætti svo og söng með stelpunum og þau bjuggu m.a. saman til nýja texta fyrir 2 erlend lög. Það má þó segja að einn keppandi Símamótsins hafi stolið senunni þegar hún kom á sviðið og rappaði hluta lagsins Baby við mikla hrifningu hinna stelpnanna. Það og fleiri myndbrot má sjá í myndböndunum hér að neðan.
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Laugardagur, 16. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Landsliðið - Pressuliðið | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Leikur Landsliðsins og Pressuliðsins fór fram fyrr í kvöld, og var hart barist. Leikurinn var frábær skemmtun og mátti sjá ótrúlega takta hjá leikmönnum beggja liða. Símamótspæjurnar í stúkunni létu ekki sitt eftir liggja og voru duglegar að hvetja bæði liðin, og skemmtu allir sér konunglega. Þegar flautað var til leiksloka hafði Landsliðið náð að skora 2 mörk, en bæði lið stóðu sig frábærlega. Hér að neðan er 2 myndbönd frá þessum skemmtilega leik:![]() Svipmyndir frá leiknum Landsliðið: Pressuliðið: | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Laugardagur, 16. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Landsliðið - pressan | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Búið er að velja þá leikmenn úr 5. flokk til að taka þátt í leik Landslið - Pressunar kl. 18:30 á Kópavogsvelli. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir stelpurnar og eru þær beðnar um að mæta í klefana undir stúkunni (leikmannainngangur við völl 11) í síðasta lagi kl. 18:00. Klefarnir verða opnir frá 17.30
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Laugardagur, 16. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Bestu fótboltakonur í heimi | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Stelpurnar í 7. flokki FH ætla að verða bestu fótboltakonur í heimi. Þær eru búnar að spila fullt af leikjum á mótinu og ganga vel og stelpurnar í A-liðnu voru meira að segja svo heppnar að fá ís fyrir góða frammistöðu á vellinum. Flestum FH-stelpunum finnst skemmtilegast að vinna leiki og spila, en henni Rakel fannst líka mjög gaman að fá sleikjó. Þegar þær vinna leiki fara þær í hring og hoppa í hringi og syngja óle, óle og er það skemmtilegast við að vinna. Stelpurnar eru duglegar að fagna mörkum sínum með handahlaupum, arabastökkum og flugvélum og þykir það víst ógeðslega fyndið. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Laugardagur, 16. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Vegna niðurröðunar sunnudags | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Verið er að vinna úr úrslitum riðla og munu þau birtast hér á síðunni um leið og þau eru ljós. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Föstudagur, 15. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Fótboltatilþrif | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Atvinnukonan Charlotte Lade frá Tottenham mætti á mótssvæðið í dag og sýndi þátttakendum ótrrúleg tilþrif. Stelpurnar voru mjög hrifnar af æfingum hennar og löng röð myndaðist þegar hún byrjaði að gefa eiginhandaáritanir. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Föstudagur, 15. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Anna Björg best | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þær Salka, Þórdís, Sandra Dís og Ása eru í 5. flokki D en Lilja er í 6. flokki. Þær voru búnar að skemmta sér vel á mótinu og spila 2 leiki. Þegar ég hitti þær voru þær á leiðinni að skipta fótboltamyndum, en 2 þeirra voru svo heppnar að hafa fengið fótboltamynd af stelpu. Þær sögðu að stelpurnar í meistaraflokki Fylkis væru góðar og markaskorarinn Anna Björg væri þeirra best. Addi og Súsanna þjálfa stelpurnar og stundum láta þau þær gera erfiða hluti, en þær vita það allar að það er bara til að gera þær betri í fótbolta. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Föstudagur, 15. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Stríðinn þjálfari | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þessar hressu stelpur eru í C liði 5. flokks Víkings. Þegar ég hitti þær voru þær búnar að spila 2 mjög skemmtilega leiki. Þær eru með 3 þjálfara, þá Martein, Jón og Viktor, og eru þeir allir fínir þjálfarar. Stelpurnar vilja samt meina að Jón sé alltaf að stríða þeim af því honum finnst það svo fyndið. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Föstudagur, 15. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Skólausu Gróttustelpurnar | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þessar flottu Gróttustelpur heita Nanna og Hekla, og eru þær báðar í 6. flokki Gróttu. Þær eru búnar að keppa 2 leiki í dag, og hefur bara gengið ágætlega og þær skemmt sér vel. Hekla mætti á mótið í fyrra, en Nanna komst ekki. Þær kepptu hins vegar báðar á móti í Keflavík fyrr í sumar, og einnig á Goðamótinu í fyrra. Þjálfarinn þeirra heitir Ingi Þór og finnst stelpunum hann mjög skemmtilegur. Flokkurinn þeirra reynir að hittast einu sinni í mánuði og gera eitthvað skemmtilegt, t.d. að fara í laser tag eða keilu. Þegar ég hitti þær vinkonur var Nanna á tásunum og Heklu á sokkunum og þær sögðu mér að það væri vegna þess að þær voru í blöðruleik í tilefni 10 ára afmæli vinkonu þeirra, hennar Ólafar Kristrúnar. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Föstudagur, 15. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Myndataka af liðum | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Á svæðinu við völl 11 fer fram myndataka af liðum. Ljósmyndari verður á staðnum til rúmlega 17. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Fimmtudagur, 14. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Símamótið 2011 sett | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Nú fyrir stundu setti Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Símamótið 2011 að viðstöddu fjölmenni. Þátttakendur á mótinu gengu að vandu fylktu liði frá Digraneskirkju og enduðu á Kópavogsvellinum þar sem Gunni og Felix og full stúka af foreldrum tóku vel á móti þeim. Willy trúður brá á leik og vakti mikla kátínu, Charlotte Lade sýndi listir sínar og stelpurnar sungu svo hástöfum með þeim Gunna og Felix. Fleiri myndir frá setningunni má finna undir Myndir.
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Miðvikudagur, 13. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Vellir | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Vellir 1-5 Fífuvellir
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Miðvikudagur, 13. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Leikjaniðurröðun 6CD og 7C | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Búið er að breyta niðurröðun í 6CD (riðlum B og D) og 7C (riðlum A og D). | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Miðvikudagur, 13. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Leikjaniðurröðun í 6CD | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Athugið að breytingar verða í 6. flokki CD. Erum að vinna í því að setja upplýsingarnar á netið. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Mánudagur, 11. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Greiðsla þátttökugjalda | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Athugið að greiða þarf fyrir þátttöku á mótinu í síðasta lagi fimmtudaginn 14. júlí. Best er að leggja gjöldin inn á reikning 0130-26-410047, knattspyrnudeild Breiðabliks kt. 410284-1389 og þarf þá að senda kvittun á simamotid@breidablik.is með upplýsingum um fyrir hve marga er borgað. Best er að prenta kvittunina líka út, það flýtir fyrir afgreiðslu mótsgagna. Nálgast skal mótsgögnin (liðsstjóramöppur, matararmbönd, sundmiða, gjafir og viðurkenningarpeninga) hjá gjaldkera í NÝJU STÚKUNNI eftir kl. 16:30 á fimmtudag. Athugið að þar verður líka hægt að ganga frá greiðslu. Þátttökugjald (þjálfarar og fararstjórar greiða ekki): Fæði/gisting (þjálfarar og fararstjórar greiða líka): | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 10. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Drög að leikjaniðurröðun | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Nú eru drög að leikjaniðurröðun komin á netið. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Miðvikudagur, 6. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Tjaldstæði | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Tjaldstæði verður á grasinu vestan við Hafnarfjarðarveg (á Kópavogstúni). Vatnssalerni og takmarkað rafmagn er á svæðinu. Tjaldstæðið er fyrir neðan Sunnuhlíð, á svæðinu þar sem bæinn Kópavogsbæ er að finna. Ákveðið hefur verið að taka gjald fyrir afnot af tjaldstæðinu og hefur verðinu verið stillt í hóf, 3.000 kr. á tjald alla helgina (þrjár nætur). | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Mánudagur, 4. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Niðurröðun í skólana | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Eftirtaldir flokkar gista í Smáraskóla, aðrir gista í Salaskóla. ÍBV, 5. flokkur
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 3. júlí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Niðurröðun í skólana á netið síðdegis á mánudag | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Niðurröðun í skólana verður birt á netinu síðdegis á mánudag. Þau lið sem enn eiga eftir að greiða staðfestingargjaldið eru beðin um að ganga frá greiðslu sem allra fyrst! | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Þriðjudagur, 21. júní 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Staðfestingargjald 21. júní | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Staðfestingargjald er 10.000 kr. á hvert lið (ef a og b lið þá 20.000 kr.) og gengur gjaldið upp í þátttökugjöld leikmanna. Gjaldið skal leggja inn á reikning 0130-26-410047, knattspyrnudeild Breiðabliks kt. 410284-1389 og þarf að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 21. júní. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt, ef lið er dregið út eftir 21. júní. Nauðsynlegt er að senda kvittun í tölvupósti á simamotid@breidablik.is. Athugið að niðurröðun í skólana fer eftir því hvenær liðin greiða staðfestingargjaldið. Upplýsingar um niðurröðunina koma inn á síðuna fljótlega. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Miðvikudagur, 8. júní 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Styrkleikaröðun | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Í ár munum við taka upp nýtt fyrirkomulag í öllum flokkum þar sem spilað verður um styrkleika á föstudeginum. Í 5. og 6. flokki er liðum sem tilkynnt eru til mótsins sem A og B lið blandað og síðan þeim sem tilkynnt eru sem C og D lið, verður s.s. spilað í tveimur hópum. Meginreglan er sú að fyrstu tvö lið frá félagi fara í Hóp 1 og þau sem á eftir koma í Hóp 2 en þó verður staðsetning liðanna skoðuð í hverju tilviki fyrir sig. Á laugardeginum er liðunum styrkleikaraðað út frá úrslitum föstudagsins og ætti því að vera mikið um jafningjaleiki. Í 7. flokki verður fyrirkomulagið svipað en þó þannig að um þrjá styrkleika er að ræða. Hópur 1 („gömlu“ A liðin), hópur 2 („gömlu“ B liðin) og Byrjendaflokkur („gömlu“ C liðin/byrjendaflokkur). Ef lið er skráð í byrjendaflokk er mjög mikilvægt að allar stelpurnar í liðinu séu byrjendur og verðum við að treysta á heiðarleika þjálfara í þeim efnum. Ein eða tvær stelpur sem æft hafa lengur breyta gangi leiksins algjörlega. Í 7. flokki er meginreglan sú að fyrsta lið frá félagi fer í Hóp 1, annað lið í Hóp 2 eða Byrjendaflokk eftir því sem við á o.s.frv. Þó verður staðsetning liðanna skoðuð í hverju tilviki fyrir sig. Á laugardeginum er liðunum síðan styrkleikaraðað út frá úrslitum föstudagsins og ætti því að vera mikið um jafningjaleiki. Gert er ráð fyrir að styrkleikahópar verði fjórir í hverjum flokki og að leikið verði í tveimur eða fjórum riðlum í hverjum styrkleikahópi. Þetta veltur þó á fjölda keppnisliða sem mæta til leiks. Vegna þessarar breytingar reynir ekki á regluna um gestalið og geta því öll lið unnið til verðlauna. Ekki verður hægt að tilkynna bara lið í C og/eða D liðum. Veitt verða verðlaun í hverjum styrkleikahóp hvers flokks. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Föstudagur, 20. maí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Skráning fer vel af stað | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hér má sjá þau lið sem hafa skráð sig til leiks í ár, athugið að sum liðin hafa nú þegar greitt staðfestingargjaldið þó að ekki sé búið að merkja við þau. Skráning og staðfestingargjald:
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Sunnudagur, 8. maí 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Staðfestingargjald | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Staðfestingargjald er 10.000 kr. á hvert lið (ef a og b lið þá 20.000 kr.) og gengur gjaldið upp í þátttökugjöld leikmanna. Gjaldið skal leggja inn á reikning 0130-26-410047, knattspyrnudeild Breiðabliks kt. 410284-1389 og þarf að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 20. júní. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt, ef lið er dregið út eftir 20. júní. Nauðsynlegt er að senda kvittun í tölvupósti á simamotid@breidablik.is. Athugið að niðurröðun í skólana fer eftir því hvenær liðin greiða staðfestingargjaldið. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Mánudagur, 7. febrúar 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Símamótið 2011 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Símamótið verður haldið í Kópavoginum dagana 14.-17. júlí 2011. Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna. Dagskráin hefst með skrúðgöngu fimmtudagskvöldið 14. júlí kl. 19.30, en keppni hefst að morgni föstudags. Mótsslit verða síðdegis sunnudaginn 17. júlí.
Allir leikir í mótinu fara fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks, bæði úti og í Fífunni. Spilað verður á hálfum velli (7 manna lið) í öllum flokkum og leikið verður skv. reglum KSÍ um minni knattspyrnu ásamt sérreglum Símamótsins. Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í 5. og 6. flokki en allir þátttakendur í 7. flokki fá verðlaunapening. Allir þátttakendur fá viðurkenningarpeninga.
Þátttökugjald (þjálfarar og fararstjórar greiða ekki) - sama gjald og í fyrra: Þátttökugjald er 5.500 kr. á hvern leikmann. Innifalið í því er keppnisgjald, grillveisla, sundmiði og skemmtidagskrá. Athugið að staðfestingargjaldið gengur upp í þátttökugjöld leikmanna. Fæði/gisting (þjálfarar og fararstjórar greiða líka) - sama gjald og í fyrra: Gjald fyrir fæði og gistingu er 4.500 kr. Innifalið í því er gisting í svefnpokaplássi í skólastofu, morgunmatur (fös., lau. og sun.) og kvöldmatur (fim. (ekki súpa) og fös.). Grillveislan hefur verið færð yfir á laugardagskvöld meðan leikur Landsliðsins og Pressunnar stendur yfir. Skráning er hafin á simamotid@breidablik.is | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|   |